Matjurtagarðar Hafnarfjarðar

Matjurtagarðar á Víðistöðum

Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir einn garð er kr. 1.723.- og fyrir tvo garða kr. 2.882.- Líkt og hin síðari ár er grænmeti eða annað efni til ræktunar ekki innifalið en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum áfram til staðar. Garðarnir afhendast plægðir og hefst úthlutun undir lok maí.

Ræktum okkar eigið grænmeti í sumar!
Ræktum okkur sjálf á sama tíma og tengslin við fólkið okkar!

9

Verð: 1.723 kr